Til að skrifa grein:
1. Smelltu hér til að skrá þig inn!
2. Skráðu þig inn. Þú færð notandanafn og lykilorð hjá kennaranum.
3. Smelltu á “Write new post”
4. Skrifaðu greinina þína. Mundu að skrifa nafn og bekk undir greinina svo þú fáir stig fyrir hana.
5. Smelltu a “Publish”.
Þú færð stig gefin fyrir hverja grein. Hægt er að fá 1-10 stig, eftir því hversu góð greinin er. Eitt stig er gefið fyrir að skrifa einfalda grein með þinni skoðun. Fleiri stig fást fyrir það hversu vel greinin er skrifuð, hversu löng hún er, hve góð heimildaöflun liggur á bak við hana, hversu mikla þekkingu á efninu hún sýnir fram á, og svo framvegis.
Stigin eru metin til lokaeinkunnar! Stigin sem þú færð fyrir greinarnar þínar eru tekin saman og metin til einkunnar. Þessi þáttur gildir allt að 15% af lokaeinkunn. Það þýðir að ef þú skrifar enga grein fyrir 10. nóvember 2008 getur þú ekki fengið hærri lokaeinkunn úr valfaginu en 8,5.
Aflaðu þér upplýsinga um efnið! Athugaðu að á síðunni “Heimildir” eru tenglar á síður sem veita fréttir og upplýsingar um bandarísku forsetakosningarnar 2008. Skoðaðu þessar síður og lestu þér til um efnið. Þú lærir eitthvað um efnið og færð fleiri stig fyrir greinarnar þínar ef þú gerir það.
Miðað er við að hver nemandi skrifi u.þ.b. eina grein á viku fram að kosningum 4. nóvember, það er að lágmarki sex greinar. Það er svo auðvitað leyfilegt að skrifa fleiri en eina á viku, svona ef ykkur liggur mikið á hjarta eða þið viljið safna stigum
Hvernig skrifa ég grein?
- Aflaðu þér fyrst almennra upplýsinga um efnið. Veldu þér heimildir á heimildasíðunni og lestu þær.
- Veldu þér afmarkað efni til að skrifa um og takmarkaðu þig við það. Ekki reyna að skrifa um of margt í einni grein. Skrifaðu frekar aðra grein um annað efni.
- Settu inn í textann tengla á áhugavert efni (t.d. myndir, fréttir eða texta) sem tengist greininni þinni.
- Reyndu að gera efnið áhugavert fyrir lesandann. Tilgangurinn hér er ekki bara að safna stigum, heldur líka að búa til áhugavert blogg um efnið fyrir aðra til að lesa og fræðast.
Skrifaðu athugasemdir (komment) við greinar hjá öðrum sem þér finnast áhugaverðar. Þannig verður bloggið að lifandi umræðuvef um efnið. Vertu jákvæð(ur) og skrifaðu undir nafni. Nafnlausum athugasemdum verður eytt.
Gangi þér vel og góða skemmtun.