Hér á eftir ætlum við að bera saman helstu stefnumál þeirra Barack Obama og John McCain fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum.

Barack Obama
Obama hefur litla reynslu af stjórnmálum en er vel máli farinn, hrífur almenning og er afburða skipulagður og yfirvegaður stjórnmálamaður.
Efnahagsmál
Barack vill að strax eftir kosningarnar verði samþykktar aðgerðir sem m.a. feli í sér að sumir bankar fresti í þrjá mánuði að innheimta húsnæðislán. Obama vill að skattur á fjárfestingum í litlum fyrirtækjum verði lækkaður og að réttur til atvinnuleysisbóta lengist. Hann ætlar sér að veita 75 billjónir dollara í efnahagslífið og þjóðarbúskap Bandaríkjanna gegnum skattalækkanir.
Heilbrigðismál
Obama vill niðurgreiða heilbrigðistryggingar með því að hætta við skattalækkanir Bush stjórnarinnar fyrir fólk sem hefur 250 þúsund Bandaríkjadali í laun á ári. Hann vill koma á sjúkratryggingakerfi fyrir öll börn og að stefnt verði að kerfi fyrir alla.
Obama vill einnig lækka kostnað í heilbrigðiskerfinu með því að gera tryggingafyrirtæki og lyfjafyritæki ábyrg fyrir fjárhæðum sem þau láta sjúklinga borga. Hann vill tryggja að þjónusta verði ekki dýr svo að allir geti tryggt sér hana.
Stríðið í Írak
Obama var alltaf á móti innrásinni í Írak og einnig fjölgun í bandaríska herliðinu á þessu ári. Hann hefur lagt fram áætlun um að kalla heim alla Bandaríkjamenn í Írak innan 16 mánaða en jafnframt senda fleiri hermenn til Afganistan.
Loftslagsbreytingar
Obama vill að Bandaríkin taki forystuna í baráttu gegn loftslagsbreytingum og minnki losun gróðurhúsalofttegunda um 80% fyrir árið 2050. Næstu tíu árin verði veittir 150 milljarðar dollara til að stuðla að notkun hreinnar orku.
John McCain
John McCain er 75 ára og elsti maður sem nær kjöri til forseta ef hann sigrar.
Efnahags- og heilbrigðismál
McCain vill gera endurbætur á almannatryggingum og heilbrigðiskerfinu og til að tryggja að allir njóti sjúkratrygginga notar hann skattaívilnanir. En hann vill ekki að byggt verði upp stórt ríkisbákn til að annast þær heldur vill hann að slíkar tryggingar séu á forræði hvers einsstaklings.
McCain vill einnig lækka fjármagnsskatt í 7,5 % á tveimur árum til að hleypa lífi í efnahaginn.
McCain vill verja 300 milljörðum dollara til að láta stjórnina kaupa upp léleg húsnæðislán og semja um vægari kjör við íbúana sem annars myndu missa hús sín
Stríðið í Írak
McCain vill fjölga bandarískum hermönnum í Írak. Í kjölfarið vill hann ekki fá herinn frá Írak fyrr en tryggt verði að sigur sé í höfn á hryðjuverkamönnum.
Loftslagsbreytingar
McCain segir loftlagsbreytingar af mannavöldum augljósa hætta og bregðast verði við með alþjóðlegum aðgerðum sem Bandaríkin taki þátt í. Einnig vill hann auka olíuvinnslu við strendur Bandaríkjanna og láta reisa 45 kjarnorkuver .
Lokaorð
Kannanir hafa sýnt að efnahagsmálin skipta Bandaríkjamenn mestu máli og ráða oftast úrslitum í forsetakosningunum.
Báðir forsetaframbjóðendurnir hafa lofað að minnka fjárlagahallann á næsta kjörtímabili.
Þeir hafa einnig gefið fyrirheit sem fela í sér skattalækkanir og aukin ríkisútgjöld.
Eydís og Danijela 10.HB
9,5 stig