Lokaspretturinn í kosningabaráttunni fyrir forsetakosningunum í Bandaríkjunum á þriðjudag. Frambjóðendurnir tveir leggja á síðustu dögunum áherslu á ríki, þar sem kannanir benda til að munurinn sé lítill. Barack Obama hefur talsvert forskot á John McCain samkvæmt flestum könnunum.
Könnun sem Zogby stofnunin gerði fyrir Reuters og C-SPAN og birt var í kvöld bendir til þess að Obama hafi 7 prósentna forskot á McCain á landsvísu. Obama hefur forskot í mörgum ríkjum þar sem George W. Bush fór með sigur af hólmi í síðustu kosningum og í öllum ríkjunum sem John Kerry sigraði í.
Kosningastjórn McCain segist hins vegar telja að munurinn fari hraðminnkandi.
Guðbrandur 10.RB

5 stig