Bristol Palin 17 ára og Levi Johnston 18 ára hafa ákveðið að ganga í hjónaband. Kjaftasögur segja að Sarah Palin varaforsetaefni bandarískra repúblikana hafi þvingað hann í hjónaband með Bristol. Hann segir að hann hafi ekki verið beittur neinum þrýstingi frá Söruh. Hann elski Bristol og hafi alltaf ætlað að giftast henni og sýnir það með því að vera búinn að húðflúra nafnið “Bristol” á baugfingurinn sinn.
Bristol Palin er ófrísk eftir Levi Johnston. Sumir segja að Levi Johnston sé ekki faðirinn. Ef hann gerði hana ólétta seinasta sumar þá ætti hún að vera komin meira enn bara fimm mánuði á leið, en það gæti líka verið ein önnur kjaftasagan. Þykir það líka yfirleitt mikill hneyksli að stúlka undir lögaldri verði þunguð. T.d ef þetta væri Britney Spears þá væri talað um lauslæti og misheppnað uppeldi foreldra. En við erum að tala um Bristol. Að vísu var Sarah ekkert mjög ánægð með þetta eins og flestar mömmur mundu verða af því að hún er nú bara 17 ára.
Bristol mun eiga von á barninu 18. desember og þarf þá Johnston að hætta í menntaskóla. Einnig er það líka út af undirbúningi brúðkaups næsta sumar. Levi Johnston segir að það hafi verið óvænt en þau eru tilbúin að takast við þá ábyrgð sem fylgir foreldra hlutverkinu og hlakkar bara til að eignast sitt fyrsta barn.
Dóra & Hrefna


6 stig