Heyrst hefur að íslandsvinurinn Dave Grolh og félagar hans í hljómsveitinni Foo Fighters eru langt frá því að vera sáttir við forsetaframbjóðandann John McCain um þetta leiti.
Ástæðan er sú að McCain og aðstoðamenn hans hafa notað lag sveitarinnar My Hero, til að auglýsa kosningabaráttu hans.
Fleiri listamenn hafa kvartað undan lagaþjófnaði McCains en það eru listamenn eins og Heart, John Mellencamp og Jackson Browne.
Já, frambjóðandi repúblikana er bara farinn í rán!
Það er eitt að hlaða niður tónlist og halda henni fyrir sjálfan sig, en að nota hana í eigin verk án þess að spyrja listamanninn.
En reyndar myndi það ekki skipta svo miklu máli fyrir svona stóra hljómsveit eins og Foo Fighters. En, höfundarréttarlögin segja skýrt að ef einhver á eitthvað, þá á hann það, og ef hann vill að þú hættir að nota eða sýna list þína við eitthvað sem hann er að gera, þá gerir þú það.
En í heiminum í dag er ómögulegt að gefa út list án þess að hún fari út í alla miðla án þess að þú viljir,
þessvegna ætti fólk að styðja Nocopy regluna: enginn höfundarréttur, þú mátt gera það sem þú vilt með hlutinn, bara að fá leyfi og muna að segja upprunalega höfundinn.
Barack Obama lenti líka í þessu nokkurnveginn um daginn, en hann fékk ósk frá listamanninum Sam Cooke að hætta að nota lagið Soul Man.
- Kári Alexander Jónsson
ég hélt að þeir væru pottþétt með leyfi fyrir því að nota lögin þeirra.. hahah
.:Hrefna:.