Kappræður Varaforsetaframjóðendanna voru síðastliðinn fimmtudag, Sarah Palin stóð sig betur en margir bjuggust við.
Joe Biden hefur auðvitað meiri reynslu en Sarah og mér fannst hann standa sig betur og þótt ég viti ekki mikið um fjármál eða stjórnmál í BNA fannst mér það sem Biden sagði “meika meira sense”.
Kappræðurnar breyta líklega ekki miklu í kosningabaráttunni en Obama virðist aftur vera farinn að auka fylgi sitt eftir að mcCain náði mikilli fylgis aukningu þegar að hann kynnti Palin sem vararorsetaefni sitt.
Nú þegar aðeins mánuður er til kosninga eru þeir nánast jafnir.
Í kappræðunum skutu þau mikið á forsetaframbjóðanda hvors annars þau töluðu um hvort ætti að senda herinn heim frá Írak og svo virtist sem Biden væri meira á því að sest yrði niður með leiðtogum óvinaþjóða heldur en Palin. Hann talaði líka um að stefna McCain í málefnum Afganistan, Íran, Palestínu og Írak væri alveg eins og það sem Bush hefði verið að gera.
Varaforsetaefnin töluðu líka um hjónabönd samkynhneigðra, en þau eru bæði á móti þannig samböndum en Biden lagði áherslu á að samkynhneigðir ættu að hafa sömu réttindi og gagnkynhneigðir en Palin sagðist hins vegar ekki styðja hjónabönd samkynhneigðra en fullyrti samt að hún væri frekar umburðarlynd (tolerant) gagnkvart samkynhneigðu fólki.
Þau ræddu líka um orkuframleiðslu, kolaorku og boranir eftir olíu, um fjármál og skatta almennings. Biden ræddi um að lækka þyrfti skatta millistéttarinnar sem væri það sem drifi efnahagslífið áfram.
Palin reyndi að notafæra sér það til framdráttar hvað hún er mikil “mamma”. Biden talaði einnig um persónuleg mál, hann minntist á hversu erfitt það hafi verið að missa eiginkonu sína og dóttur og hversu erfitt það hefði verið að vera einn með syni sína. Biden sagði Bandaríkjamenn vilja breytingar.

Það vantar undirskrift! Ég get ekki gefið stig þegar ég veit ekki hver á greinina!