Sarah fæddist 11. febrúar 1964 í Idaho í Bandaríkjunum en flutti með foreldrum sínum og 3 systkynum til Alaska, þegar hún var mjög lítil. Mamma hennar, Sarah Heath, vann sem skólaritari og pabbi hennar Charles R. Heat var kennari og þjálfaði frjálsar íþróttir. Sem barn fór Sarah oft með pabba sínum á elgveiðar og fjölskyldan stundaði mikið útivist og íþróttir, sem Sarah gerir líka enn.
Sarah gekk í Warsilla highschool hún spilaði körfubolta með skólaliðinu og vann Alaskamót (lítilla skóla). Hún útskrifaðist frá skólanum 1982. Í skólanum hitti hún Todd, manninn sinn, en þau giftu sig 29. ágúst 1988, þá var hún 24 ára.
Árið 1984 vann Sarah Ungfrú Warsilla fergurðarsamkeppnina og lenti í öðru sæti í Ungfrú Alaska, þar sem hún vann skólastyrk og var valin vinsælasti keppandinn.
Sarah hleypur maraþon, og stundar veiðar og snjósleða. Todd maðurinn hennar gerir það líka og er fjórfaldur meistari í stærstu snjósleðakeppni í heimi. Þau búa í litla bænum Warsilla. Todd vinnur við olíu framleiðslu og í fjölskyldu veiðifyrirtæki. Þau hjónin eiga fimm börn, Track (19), Bristol (18), Willow (13), Piper (7) og Trig (1) sem er með downs heilkenni. Track skráði sig nýlega í herinn, en mikið hefur verið deilt um þungun elstu dótturinnar en Sarah tilkynnti 1. september að dóttir hennar Bristol væri ólétt og ætlaði að giftast kærastanum sínum og föður barnsins, Levi Johnston.
-Hrefna Ragnhildur 10.HH
Mjög flott grein – mjög áhugaverð!
Gaman líka að pæla í því að það er líklegt að ef McCain vinnur að þá verður þessi kona kannski forseti Bandaríkjanna einhvern tímann næstu 4 árin – McCain er orðinn svo gamall – aldrei að vita hvenær hann ákveður að hrökkva uppaf XD
– Oddur Ævar
Ágæt grein.
6 stig