Las ég það í blaði einu að John McCain væri ansi hjátrúarfullur.
Sumir segja að hjátrú hans hafi vaknað þegar hann var flota flugmaður bandaríksa hersins í Víetnam,
en aðrir segja að hann sé einfaldlega sérvitur.
Hér ætla ég að nefna nokkur dæmi um hjátrúr hans :
* Enginn skildi rétta honum saltstauk.
* Það ætti ekki að kasta hatti á rúmgaflinn.
* Hann er ávallt með lukkuklink á sér.
* 1 cent peningur (penny)
* 5 centa peningur (nickel)
* 25 centra peningur (quarter)
* Hann ber lukku áttvita sinn með sér.
* Einnig ber hann lukku fjöðrina sína með sér.
* Hann er líka með plastaðann fjögurra laufa smára á sér.
* Hann tekur ekki upp mynt nema “fiskihliðin” sé upp (heads upp)
* Síðan er aðstoðarmaður hans ávallt með lukkupenna McCains á sér.
Einn annar þáttur sérvisku hans er að hann er ekki parhrifinn af ólukkutölunni 13.Til dæmis lét hann endurmerkja og -nefna alla 13. hæð í bækistöð kosningabaráttu sinnar “the M floor” (M fyrir McCain).Stendur nú M í stað tölustafsins 13 á lyftutökkunum.
En það skondna er að stafurinn M er einmitt 13. stafurinn í bandaríska stafrófinu.
Hvernig ætli Hvíta Húsið endi ef hann verður forseti?
Ykkar Rakel Ósk
10.HH
Áhugavert efni, ekki hafði ég hugmynd um þetta!
- Jóhannes Þ.
7 stig.
-Jóhannes Þ.