Hillary Clinton fæddist í Chicago þann 26. október 1947. Hún giftist Bill Clinton sem var forseti Bandaríkjanna árin 1993-2001. Þau eiga eina dóttur saman, sem heitir Chelsea og er 28 ára gömul. Þegar Hillary var lítil elskaði hún íþróttir og að fara í kirkjuna sína. Foreldrar hennar hvöttu hana til að læra mikið og leifðu henni að ákveða sjálf hvað hún vildi verða í lífinu. Árið 1973 útskrifaðist hún úr Yale lagaskólanum. Síðan árið 1975 gekk hún í lagaháskóla í Akransans og giftist Bill Clinton. Hún var tvisvar nefnd ein af hundrað áhrifamestu lögfræðingum í Ameríku.
Hillary er öldungardeildarþíngmaður í efri deild bandaríska þíngsins fyrir New York fylki. Hún er fyrsta konan sem talin er hafa átt raunhæfan möguleika á að verða forsetisframbjóðandi eða jafnvel forseti Bandaríkjanna.
Keppinautur hennar um að verða forsetaefni Demókrataflokksins er Barak Obama. Undanfarna mánuði hefur verið hörð barátta milli Hillary og Obama. Hillary hefur haldið því fram að hún eigi meiri möguleika á að sigra McCain en Obama.
Í félagsmálum hefur Hillary skýrar stefnur:
- t.d vil hún gera heilbrigðiskerfið stakkbúið fyrir alla bandaríkjamenn, ríka sem fátæka.
- takmörkun á skotvopnaeign og strangara eftirlit.
- Skyldutryggingar fyrir alla og stuðning fyrir þá sem eru fátæk til að sækja læknisþjónustu og opinbert tryggingakerfi í anda Medicare.
- Vill að stórfyrirtæki taki þátt í að greiða heilbrygðistryggingu starfsmanna, og heilbrigðisprógram fyrir börn.
Þetta eru nokkrar stefnur hennar Hillary.
Danijela Bibic 10.H.B
Fín grein, vel gert.
- Jóhannes Þ.
Fín grein um áhugaverða konu.
6 stig.
-Jóhannes Þ.