Þann 4. nóvember næstkomandi fara fram forsetakosningar í Bandaríkjunum. Kosningar sem þessar eru alltaf áhugaverðar og skipta ekki aðeins Bandaríkjamenn máli, því verið er að kjósa í valdamesta embætti heims. Bandaríkin eru eina stórveldi veraldarinnar um þessar mundir og stefna og aðgerðir Bandaríkjamanna í hinum ýmsu heimsmálum hafa áhrif á allan heiminn. Forsetakosningar í Bandaríkjunum skipta því okkur öll máli.
Í þetta sinn eru kosningarnar sérlega sögulegar. Í fyrsta sinn í sögunni hefur svartur maður möguleika á því að verða kosinn forseti Bandaríkjanna, og í fyrsta sinn í sögunni hefur kona möguleika á því að verða varaforseti Bandaríkjanna. Þetta tvennt, ásamt þeirri staðreynd að val Demókrataflokksins á forsetaefni stóð á milli Barack Obama, sem er svartur, og Hillary Clinton, sem er kona, gerir forsetakosningarnar 2008 að algerlega sérstökum atburði í sögu Bandaríkjanna.
Þessar kosningar koma líka á sérstökum tíma fyrir Bandaríkjamenn. Bandaríkin standa frammi fyrir margs konar vandamálum um þessar mundir, bæði heima fyrir og í utanríkismálum. Bandaríski herinn er bundinn niður í tveimur stríðum, í Afghanistan og Írak, þar sem stríð hefur geisað síðan 2003 og hefur kostað um 5000 bandaríska hermenn lífið. Samband Bandaríkjanna við Evrópu og umheiminn hefur sjaldan verið jafn stirt, Rússland er að eflast mikið á ný og er farið að gera tilkall til stórveldisstöðu sinnar sem það missti við fall Sovétríkjanna árið 1991.
Heima fyrir hefur efnahagsástandið ekki verið jafn slæmt síðan í kreppunni miklu 1929-1939 og fjölmargir bandaríkjamenn standa nú frammi fyrir því að missa heimili sín vegna hækkandi olíuverðs, matarverðs, verðbólgu og lækkandi launa. Það verður því nóg um að hugsa fyrir væntanlegan forseta Bandaríkjanna.
Þau John McCain og Sarah Palin frá Repúblíkanaflokknum takast í þessum kosningum á við Barack Obama og Joe Biden frá Demókrataflokknum, og það verður spennandi að sjá hvernig kosningabaráttan þróast þessa 65 daga sem eftir eru fram að kosningum.