Feeds:
Færslur
Ummæli

Margir hafa á undanförnum vikum tekið eftir og hrósað þessu framtaki hjá nemendum Seljaskóla.  Nú hefur síðunni borist bréf frá Silju Báru Ómarsdóttur, forstöðumanni Alþjóðastofnunar HÍ, þar sem hún hrósar nemendum í hástert fyrir frábært framtak. Fyrir þá sem fylgdust með kosninganóttinni má benda á að Silja Bára var einmitt aðalsprautan í kosningasjónvarpi RÚV þá um nóttina.

Lesa má bréfið frá Silju Báru hér.

Hillary í Hvíta Húsið?

 

Leynifundur milli Hillary Clinton og Barack Obama fyrir nokkru  hefur sett þann orðróm af stað að Obama vilji Hillary, fyrrverandi kosningaandstæðing, sem utanríkisráðherra BNA.

Þau hittust á skrifstofunni hjá Obama í Chicago, að sögn fréttaritara Times tímarítsins. Hvorugt hefur talað opinberlega um þennan fund þeirra, en ónafngreint aðstoðarfólk hefur lekið upplýsingum til fjölmiðla ,s.s CNN, að Obama bauð Hillary stöðu sem utanríkisráðherra BNA.

Í viðtali fyrir stuttu gaf hún það í skyn að hún væri opin fyrir þeim möguleika að gegna hlutverki í stjórn Hvíta Húsins, en fyrir þennan fund hafði hún sagt að hún hafði ekki áhuga á því.

Þegar spurð hvaða hlutverki hún gæti gengt í Obama stjórninni svaraði hún þessu:

“”I am happy being a senator from New York; I love this state and this city. I am looking at the long list of things I have to catch up on and do. But I want to be a good partner and I want to do everything I can to make sure his agenda is going to be successful.”"

Hillary og eiginmaður hennar, Bill Clinton, studdu Obama ítarlega síðustu vikur í kosningabaráttunni, til þess að sameina sína stuðningsmenn við stuðningsmenn Obama. Gerðu þau það til að reyna að tryggja forsetasigur fyrir demókrata.

Á góðri stundu.

Á góðri stundu.

 

Þar með að  tappa á  þann orðróm að Hillary væri bitur vegna ósigur síns gegn Obama í framboði sínu fyrir Demókrata.

 

Efttir að  Obama hefur unnið kosningabaráttuna  hefur hann tekið til sín nokkra fyrrverandi starfsmenn Bills Clintons frá því að hann var forseti, þar á meðal Rahm Emanuel sem var helsti ráðgjafi Clintons á hans kjörtímabili.

 Það heyrðist líka að Obama hafði íhugað John Kerry, þingmann Demókrata í Massachusetts ríki, og Chuck Hagel, þingmann Repúblikana  í Nebraska ríki, sem utanríkisráðherra BNA.

Nú er bara að bíða og sjá hvað gerist.

Takk fyrir 
Rakel Ósk 10.HH


Fyrsti blaðamannafundurinn

Þetta var fyrsti blaðamannafundur Barack Obama (7.nóvember) eftir að hann sigraði kosningarnar.

Hann lagði áherslu á efnahagsmálin sem eru í forgangi um þessar mundir. Hann sagðist munu lækka skatta láglauna fólks, hjálpa millistétta fólki og  talaði um alvarleika atvinnuleysis í landinu. Og að þetta væru erfiðustu efnahags vandamál í lífi flestra.

Hann tekur auðvitað ekki við forsetiembættinu fyrr en 20. janúar á næsta ári en hann undirbýr sig einsog hægt er.

Í einu svari sínu minntist hann á hvítahúss hundamálin, önnur dóttir hans er með ofnæmi og þetta er mikið vandamál en þau reyna að finna einhverja lausn.

Einnig hefur verið áberandi í fjölmiðlum umræðan um fangabúðirnar í Guantanamo, Obama segjir að það verði algert forgangsatriði að loka þessum hræðilegu fangabúðum sem núverandi forseti lét opna eftir ellefta september.

-Hrefna Ragnhildur 10. HH

Óvinsældir George Bush

George Bush er óvinsælasti forsetinn síðan mælingar hófust kerfisbundið fyrir sex áratugum. Hvorki meira ne minna en 70% voru óánægð með verk forsetans. Engum forseta hefur tekist að ná svona miklum óvinsældum og það 3 sinnum yfir eitt ár. Keating Holland sem stýrir skoðanakönnun á CNN, sagði að Bush væri kosinn verri forseti en Richard Nixon sem sagði af sér embætti vegna Watergate-málsins. Barack Obama tekur við embætti nú 22. janúar, Obama heimsótti Bush 10. nóvember í kvöldmat. 57% sögðu að valdaskiptin myndu ganga snurðulaust fyrir sig en 39% sögðu að ýmislegt myndi ganga á. Þetta mældist í skoðanakönnun á CNN.

George Bush “lofsyngur” Barack Obama

Fráfarandi forseti segir í ræðu nýlega að það sé sigur bandarískrar sögu að Barack Obama hafi verið kjörinn. Barack og eiginkonu hans var boðið í Hvíta húsið til George Bush til að ræða samvinnu þegar Obama tekur við embætti. Borgarar í Bandaríkjunum tóku stórt skref og sýndu umheiminum lýðræði í heimalandinu, margir trúðu ekki augu sínum og eyrum þegar fréttir komu um að Obama væri orðinn forseti. Að baki standa 2 ár að kosningarundirbúningi.

Þetta er ykkar sigur

Barack Obama nýkjörinn forseti sagði í ræðu við Bandaríkjamenn og konur að þetta sé þeirra sigur og okkar barátta. Talið er að um 250 þúsund manns hafi komið saman í Chicago til að fagna sigri blökkumannsins yfir ellilífeyrisþeganum. Obama talaði um að verkefnin og baráttan sem framundan væri yrði langur vegur og tekinn i skrefum, þetta yrði kannski ekki á einu ári eða einu kjörtímabili. Obama hefur aldrei verið eins bjartsýnn og lofaði að þetta myndi takast.

Nýtt tækifæri

Kjör Obama er nýtt tækifæri fyrir Bandaríkin bæði innanlands og utanlands. Bandaríkin eiga kost á þvi að  verða eitt af forusturíki lýðræðis og friðar í heiminum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir að kjör Obama sé gott tækifæri fyrir Ísland til að mynda mikilvæg tengsl við nágranna okkar í vestri.

Obama biðst Afsökunar

Barack Obama biður Nancy Reagan afsökunar á þeirri yfirlýsingu að hún hafi verið með miðilsfundi í Hvíta húsinu en hún játar að hafa leitað ráða hjá stjörnuspekingum þegar maður hennar Ronald Reagan var forseti. Obama talaði við alla núlifandi forseta Bandaríkjanna og vildi ekki taka upp siði Nancy að vera með miðilsfundi í Hvíta húsinu. Stephanie Cutter sagði í viðtali að nýkjörni forsetinn hafði haft persónulega samband við Nancy til að biðjast afsökunar á þessu og Cutter gaf út þá yfirlýsingu að Barack bæri mikla virðingu fyrir forsetafrúnni fyrrverandi.

Ólafur Þórisson  10.HH

Já, á kosningavöku Obamas á meðann hann flutti ræðu sína fyrir fólkið, sagði Obama:

“Sasha and Malia, I love you both so much, and you have earned the new puppy that’s coming with us to the White House”

Nýja gæludýrið í Hvítahúsinu mun vera eitt af mörgum öðrum gæludýrum sem fylgdu öðrum forsetum:

Bush fjölskyldan: Höfðu kött og tvo hunda yfir þessi átta ár sem George og co áttu heima í hvítahúsinu, kött, Enskan Springer Spaniel hund og tvo Skoska Terrier hunda.

Clinton Fjölskyldan: Höfðu kött að nafni Socks, sem sætti sig aldrei við að lifa með brúna Labradorinum þeirra, Buddy.

Thomas Jefferson: Hann geymdi tvo birni í búri á Lóð Hvítahússinns.

John Quincy Adams: Það er sagt að hann hafi leyft krókódýlunum sínum í baðkarið sitt.

Calvin Coolidge: Gékk með Þvottabirnina sína í ól.

Theodore Roosvelt: Synir hans gengu með hrossið sitt í liftu Hvítahússins til að gleðja veikt systkyni.

Martin Van Buren: Átti tvo tígrisdýraunga sem gjöf frá Oman Sultána.

Að eiga dýr hefur oft gert forseta vinsælari en stundum bara gert þá skrítna. Dýr í Hvítahúsinu hafa verið allar stærðir og gerðir og hafa fylgt forsetum og fjölskyldu þeirra í gegnum árin í Hvítahúsinu alveg sama hversu skrítin þau eru. En ég loka með orðum Harry Trumans:

“If you want a friend in Washington, get a dog!”

art_barney_afp_gi

takk fyrir,

Ingvar Helgi Árnason, 10.H.H.

hvað verður gert?

núna í gær var Barack Obama kosinn næstu forseti Bandaríkjanna, og hann tekur við 22. janúar.

núna er bara spurningin: hvað gæti gerst?

ég velti þessu fyrir mér þegar kosningunum var að ljúka og þau Silja og Karl ræddu það inn á milli sem pásur komu og það sem þau sögðu var að fyrstu hundrað dagarnir skipta oftast mestu máli til þess að fólk trúi því að þú sért að standa við þitt. þau sönnuðu mál sitt með því að taka Bill Clinton sem dæmi: hann klúðraði allgerlega öllu á fyrstu hundrað dögunum.

Obama þyrfti að flýta sér mjög mikið miðað við það sem hann er að fara að gera, ætla að gefa ykkur round up af stefnu hans.

Efnahagskerfið:

Hann ætlar að bæta kerfi Bandaríkjanna með því að skapa ný störf og létta álagið á miðstéttarfólki með því að lækka skatta um þrefalt.

Menntun:

Hann ætlar að bæta menntun landsins með því að endurbæta No Child Left Behind kerfið með því að bæta kennslu barna snemma í skólum og fá góða kennara.

Rafmagn og Umhverfið:

Þarna ætlar Obama að fjárfesta í öðruvísi eldsneytum eins og metan, vetni og etanol. Hann mun líka fjárfesta í endurvinnalegri orku. Hann setti saman áætlun um að búa til  fimm milljón “græn” störf til að Bandarísk orka yrði betri.

Heilsukerfið:

Hann ætlar að bæta heilsukerfið, þannig að það sé ódýrara og aðgengilegara fyrir alla, sérstakelga fjölskyldur.

Írak:

Obama ætlar að gera allt sem hann getur til að stöðva stríðið í Írak, sem hefur staðið svo lengi.

Kvennaréttindi:

Obama styður konur í öllu og engu þannig hann ætlar að bæta réttindi kvenna og laun þeirra.
hann ætlar að bæta mæðraleyfislaun  og fleira.

þetta er bara brot af því sem hann ætlar að gera eftir 22. janúar. vonum að honum gangi vel :)

- Kári Alexander Jónsson 10.H.H.

Við horfðum á Forsetakosningarnar á RÚV sem voru 4. Nóv frá kl. 22:25 – kl. 07:00 um morgunn daginn eftir. Kosningarvaka Obamas var í Grant Park í Chicago, Illinois, og hans McCains var í  í Phoenix, Arizona.

RÚV byrjaði að sýna kosningavökuna beint frá CBS kl. 23:40. Strax og niðurstöður byrjuðu að koma var þetta frekar jafnt en í byrjun var McCain með fleiri kjörmenn með sér en næstum strax eftir það valtaði Obama yfir hann með Kjörmenn annars voru venjuleg atkvæði óskaplega jöfn yfir allar kosningarnar. Þetta var 49% á móti 51% yfir allar kosningarnar en í endann var Obama yfir með 52% á móti 48% venjuleg atkvæði.

Yfir milljón manns mættu á kosningavöku Obama, og andinn var frekar góður þar. það var eftirtektarvert hversu mikið af ungu fólki var mætt þarna og kusu fyrir Obama. það var troðfullt þarna svo að fólk sem gat ekki fengið miða inn á leikvanginn voru fyrir utan og veittu honum stuðning.

Margt fólk var hrært yfir rosalegum árangri Obama, margir brutust í grát, eins og Jesse Jackson sem meðal annars sagði “‘Ecstasy in Chicago Tonight” þegar niðurstöðurnar voru orðnar bjartar fyrir Obama.

þetta voru langar kosningar og CBS tók sér oft pásur og á meðan þeim stóð útskýrðu þau Ingólfur Bjarni Sigfússon og Silja Bára Ómarsdóttir allt sem var að ganga á og maður fékk að vita um margt sem maður skildi kanski ekki alveg. þau tóku viðtöl við meðal annars Karl Thor Birgisson, Þórlind Kjartansson og Michael Corgan. þau höfðu líka margt að segja og töluðu nú mikið um mistök hins verðandi fyrrverandi forseta, George Walker Bush, og hvað næsti forseti yrði að takast á við eftir 20. janúar 2009.

Gríðarlega margir kusu í ár, sérstakelga mikið af ungu fólki, þar sem að núna hefur Bush eyðilagt efnahagslífið og ungt fólk vildi fá breytingu. Þessar kosnignar enduðu vel og fljótlega þökk sé rafrænum kosningum sem er nýjung í bandaríkjunum og ekki þurfti að endurtelja atkvæðin og engin fölsun varð, ólíkt og árið 2000 þegar Texas- og Flórídaríki kusu bara fyrir Bush, sem var frekar grunnsamlegt, þar sem að Bush hafði verið ríkisstjóri Texas og bróðir hans var og er enn í dag ríkisstjóri Flórída.

þetta var lýsing okkar á Forsetakosningunum í Bandaríkjunum 2008.

Gangi þér vel Obama!

 

Ingvar Helgi Árnason og Kári Alexander Jónsson, 10 H.H.

 

Til hamingju Obama!

Til hamingju Obama!

 

Já, í nótt varð það ljóst að Barack Obama hafði hlotið næga kjörmenn til þess að geta myndað ríkisstjórn og orðið valdamesti maður heims. En hann fékk 349 kjörmenn á móti 162 kjörmönnum McCain sem að ég tel að sé alveg ágætisrúst en til þess að vera öruggur með forsetaembættið þarftu að vera með 270 kjörmenn. Ekki spyrja mig meira útí hvernig þetta kjörmannakerfi virkar – ég veit það ekki nægilega vel sjálfur!

Lokaræður beggja frambjóðenda voru svakalega góðar að mínu mati, jafnvel þó að gríðarlegur munur hafi verið á tilefnum ræðanna en auðvitað hélt Obama sigurræðu á meðan að McCain varð að halda tapræðu. 

Ræða Obama var að ég held að megi segja mjög söguleg en hann vitnaði mikið í hina táknrænu kveðjuræðu dr. Martin Luther King sem hann hélt kvöldið fyrir lát sitt fyrir fjórum áratugum. Það er ekkert óeðlilegt, Obama hefur gert það áður en svo er hann líka að ná gríðarlegum áfanga, sem að ég held að flestalla blökkumenn hafi dreymt um síðan að þeir urðu að halda áfram með réttindabaráttu sína án King. Í ræðunni var Obama hættur að tala sem frambjóðandi og talaði hann sem þjóðhöfðingi um framtíðina nú þegar að hann hefur tryggt þær breytingar sem að hann hefur barist fyrir.

Sigur Obama var sögulegur að öllu leyti.  Ríkin Indiana, Colorado, Virginía og Norður-Karolína féllu öll hans megin í þessum kosningum – en þau hafa verið ríki Repúblikana síðustu áratugina. Svo fóru tvö ein mikilvægustu ríkin til Obama, Ohio og Flórída, – en þess er gamans að geta að sá sem hefur unnið í Ohio í kosningunum hingaðtil hefur alltaf komist í forsetaembættið. Eins og fyrr segir er Obama engin breyting þar á. Pennsylvanía var mjög mikilvægt ríki að þessu sinni og hafði McCain vonast til þess að geta unnið í því og þannig komist í forsetaembættið einhvernveginn(til þess þurfti náttúrulega allt að ganga upp) – en því miður fyrir McCain að þá tók Obama það líka – og það með meiri mun en nokkurn hafði órað fyrir.

Sumir halda kannski að Obama sé nú þegar orðinn forseti en það er ekki raunin. Eftir 76 daga sver hann sig í embætti og getur þá hafist handa við þær breytingar sem að hann boðaði. Þangað til hefur elskan okkar George Bush ennþá völdin og getur gert allan þann óskunda sem að honum sýnist. Annars verður Obama að sjálfsögðu ekkert í fríi þessa 76 daga, hann verður…eða þ.e.a.s ætti að vera á fullu spani við það að skipa embættismenn nýrrar ríkisstjórnar sinnar og fyrst og fremst að koma með hugmyndir sínar og tillögur til þeirra breytinga sem hann byggði kosningabaráttu sína á.

Demókratar hafa traustan þingmeirihluta í báðum deildum og styrktu þá báða frá eftirminnilegum sigri 2006 og nú þegar að forsetinn er líka Demókrati – hafa þeir öll tækifæri til þess að láta verkin tala. Enginn Bush fyrir lengur.

Væntingarnar eru gífurlegar til Obama. Kjósendur kusu hann á grundvelli breytinga og ættum við að sjá stefnu hans og ríkisstjórnar hans mótast á næstu 176 dögum – en það verður ákaflega áhugavert að sjá hvort að Obama geti staðið undir þessu öllu. Þjóð hans í tveimur stríðum – fjármálakreppa skekur heiminn – virðing alheimsins fyrir Bandaríkjamönnum í algjöru lágmarki(þó svo að hún hafi án efa hækkað eftir þessi úrslit) og vandamálin halda áfram. Verður gaman núna að sjá hvort að Obama verði í rauninni góður forseti, því að hann er einfaldlega óskrifað blað.

Oddur Ævar – 10.HH

Lokaspretturinn

  Spennan er í hámarki hvor verður forseti, verður það Obama eða John Mccain.kosningarnar eru í nótt, aðfaranótt Miðvikudags 4 nóvember.

Obama er talinn sigurstranglegri samkvæmt skoðunnarkonnunum munar 7% ( 44%-51% ). Það eru 4 ríki sem þeir eru að berjast um. Ohio, Flórida, Virginia, Norður-Karólina. 

Talið er líklegt að Obama vinni sömu ríki og John Kerry vann þegar hann keppti við Bush, plús Iowa og Nýja Mexikó.

[http://www.mbl.is/mm/frettir/sjonvarp/20852/]
Obama með forskot.

 

Þeir hafa reynt ýmsar mjög óvenjulegar leiðir til að ganga í augun hjá þjóðinni. þetta er gott dæmi um það þegar John Mccain reindi t.d að reina að snúa baráttunni við.

http://siljabara.eyjan.is/2008/11/mccain-snl.html.
Þarna er John Mccain að gera ómedanlega fyndið grín af sjálfum sér.

Þetta er dýrasta kosningabarátta í sögu forsetakosninga.

Búið er að kjósa í Maine, New Hampshire, Indiana og Kentucky. Það var full Þáttaka  í Dixville Notch sem er í New Hampshire Obama var með 15 atkvæði en McCin 6. John McCin er með 1,4% forskot í indiana. Obama ferðaðist um Indiana í von um sigur þar. Það yrði sögulegt því demokratar hafa ekki sigrað þar síðan Lyndon B. Johnson var forseti. Obama, McCin , Sarah Palin og Joe Biden.

Tveir Bandarískir geimfarar Fincke og Greg Chamifott, hafa kosið í forsetakosningonum Þeir kusu í gær í gegnum læsta stafræna sendingu. Sérstakir stafrænir kjörseðlar höfðu verið sendir til þeirra. Árið 1997 var fyrst kosið í geimnum síðan þá hafa alls fjórir geimfarar kosið í geimnum.

Fleiri kjósendur hafa valið Obama en McCain sem forseta. þá hafa flestir lagt meiri áherlsu  á að styrkja bandaríska velferðarkerfið  í staðinn fyrir að koma böndum á ríkisfjármálin og minnka fjárlagahallann.

 Ekki má samt gleima að hver tala skiftir máli og við bíðum spennt eftir niðurstöðonum í nótt.

 

Dóra og Hrefna

Starf varaforsetans

Aðal starf varaforsetans í Bandaríkjunum er takmarkað. Varaforsetinn er forseti öldungadeildar bandaríska þingsins en án atkvæðisréttar nema þegar atkvæðin eru jöfn, en þá hefur hann úrslitaatkvæðið. Sem forseti  öldungadeildarinnar hefur hann umtalsvert dagskrárvald og getur þannig haft áhrif á starfsemi þingsins.

 

Nokkrir fyrstu varaforsetar Bandaríkjanna beittu sér nokkuð á þinginu en í dag eru afskipti varforseta þar fyrst og fremst formlegs eðlis, það er að segja, varaforseti setur þingið en felur síðan varaforseta þingsins störf sín við dagskrárstjórnun.

 

Önnur formleg völd hefur varforsetinn ekki ef frá er talið að hann tekur við störfum forseta falli hann frá eða geti ekki sinnt störfum sínum af öðrum ástæðum.

 

Varaforsetar koma gjarnan fram fyrir hönd forseta innanlands sem utan, þeir þrýsta á þingið í tengslum við löggjöf sem forsetaembættið styður og sitja í nefndum framkvæmdavaldsins um ýmis málefni.

Forsetinn ræður því hvaða starf hann fær og er háð jafnt persónuleika forsetans sem og varaforsetans.

SIF 10 HB

Íbúar fiskibæjarins Obama í Japan undurbúa nú heljarinnar veislu og kosningavöku til að fylgjast með gengi nafna síns í forsetakosningum í Bandaríkjunum.

Um 50 bæjarbúar í stuttermabolum með áletruninni „Ég elska Obama” æfðu um helgina húladans til að fagna frambjóðandanum, sem fæddist í Honolulu. Þeir vonast til að hann sigri kosningarnar, og heimsæki bæinn þegar hann er orðinn forseti Bandaríkjanna.

Þá segir Reuters fréttastofan að meðlimir húla-hóps í bænum hafa ferðast til Hawaii til að fagna sigri Obama á Hillary Clinton á sínum tíma. Hópurinn hyggi einnig á að vera viðstaddur embættistöku hans ef hann vinnur. Bæjarbúar vonast til þess að nafnið veki athygli á bænum og laði að honum ferðamenn.

Guðbrandur 10.RB

http://tubestroker.files.wordpress.com/2007/11/barack_obama.jpg

Hér á eftir ætlum við að bera saman helstu stefnumál þeirra Barack Obama og John McCain fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum.

 

 

Barack Obama

 

Obama hefur litla reynslu af stjórnmálum en er vel máli farinn, hrífur almenning og er afburða skipulagður og yfirvegaður stjórnmálamaður.

Efnahagsmál  

Barack vill að strax eftir kosningarnar verði samþykktar aðgerðir sem m.a. feli í sér að sumir bankar fresti í þrjá mánuði að innheimta húsnæðislán. Obama vill að skattur á fjárfestingum í litlum fyrirtækjum verði lækkaður og að réttur til atvinnuleysisbóta lengist. Hann ætlar sér að veita 75 billjónir dollara í efnahagslífið og þjóðarbúskap Bandaríkjanna gegnum skattalækkanir.

Heilbrigðismál

Obama vill niðurgreiða heilbrigðistryggingar með því að hætta við skattalækkanir Bush stjórnarinnar fyrir fólk sem hefur 250 þúsund Bandaríkjadali í laun á ári. Hann vill koma á sjúkratryggingakerfi fyrir öll börn og að stefnt verði að kerfi fyrir alla.

Obama vill einnig lækka kostnað í heilbrigðiskerfinu með því að gera tryggingafyrirtæki og lyfjafyritæki ábyrg fyrir fjárhæðum sem þau láta sjúklinga borga. Hann vill tryggja að þjónusta verði ekki dýr svo að allir geti tryggt sér hana.

Stríðið í Írak

Obama var alltaf á móti innrásinni í Írak og einnig fjölgun í bandaríska herliðinu á þessu ári. Hann hefur lagt fram áætlun um að kalla heim alla Bandaríkjamenn í Írak innan 16 mánaða en jafnframt senda fleiri hermenn til Afganistan.

Loftslagsbreytingar

Obama vill að Bandaríkin taki forystuna í baráttu gegn loftslagsbreytingum og minnki losun gróðurhúsalofttegunda um 80% fyrir árið 2050. Næstu tíu árin verði veittir 150 milljarðar dollara til að stuðla að notkun hreinnar orku. 

 

John McCain

 

John McCain er 75 ára og elsti maður sem nær kjöri til forseta ef hann sigrar.

Efnahags- og heilbrigðismál 

McCain vill gera endurbætur á almannatryggingum og heilbrigðiskerfinu og til að tryggja að allir njóti sjúkratrygginga notar hann skattaívilnanir. En hann vill ekki að byggt verði upp stórt ríkisbákn til að annast þær heldur vill hann að slíkar tryggingar séu á forræði hvers einsstaklings.

McCain vill einnig lækka fjármagnsskatt í 7,5 % á tveimur árum til að hleypa lífi í efnahaginn.    

McCain vill verja 300 milljörðum dollara til að láta stjórnina kaupa upp léleg húsnæðislán og semja um vægari kjör við íbúana sem annars myndu missa hús sín 

Stríðið í Írak

McCain vill fjölga bandarískum hermönnum í Írak. Í kjölfarið vill hann ekki fá herinn frá Írak fyrr en tryggt verði að sigur sé í höfn á hryðjuverkamönnum.

Loftslagsbreytingar

McCain segir loftlagsbreytingar af mannavöldum augljósa hætta og bregðast verði við með alþjóðlegum aðgerðum sem Bandaríkin taki þátt í. Einnig vill hann auka olíuvinnslu við strendur Bandaríkjanna og láta reisa 45 kjarnorkuver .

 

Lokaorð

Kannanir hafa sýnt að efnahagsmálin skipta Bandaríkjamenn mestu máli og ráða oftast úrslitum í forsetakosningunum.

Báðir forsetaframbjóðendurnir hafa lofað að minnka fjárlagahallann á næsta kjörtímabili.

Þeir hafa einnig gefið fyrirheit sem fela í sér skattalækkanir og aukin ríkisútgjöld.

 

 Eydís og Danijela 10.HB

John McCain

John Sidney McCain III er fæddur þann 29 ágúst 1936 í Panama. McCain var í bandaríska sjóhernum þegar Bandaríkjamenn tóku þátt í stríðinu í Víetnam. Hann var tekinn sem stríðsfangi og þurfti að ganga í gegnum hrottalegar pyntingar. McCain var kjörinn þingmaður í öldungardeildinni árið 1986.

McCain er forsetaframbjóðandi repúblikana í forsetakosningunum og öldungadeildaþingmaður fyrir Arizona. McCain hlaut útnefningu sem forsetaefni Repúblikanaflokksins 4. Mars 2008 með sigri í Texas, Vermont, Rhode Island og Ohio náði hann lágmarkinu 1191 þingfulltrúa. Í lok ágúst 2008 tilnefndi hann Söruh Palin sem varaforsetaefni sitt. Ef að McCain verður kosinn forseti Bandaríkjanna verður hann elsti forseti sögu Bandaríkjanna eða 72 ára gamall.

SIF 10 HB

Sarah Palin

Sarah Louise Heath Palin fæddist 11 febrúar 1964 í Sandpoint Idaho. Sarah á 3 dætur og 2 syni og er gift Todd Palin. Sarah er ríkisstjóri Alaska frá 2006 og er varaforsetaefni John McCain í forsetakosningunum.

Sarah æfði körfubolta þegar hún var yngri og hlaut gælunafnið Barrakúda. Hún sá um að leiða bæn áður en leikirnir hófust. Hún fór í háskólann í Idaho. Hún var bæjarstjóri Wasilla í Alaska frá 1996 – 2002 þar sem 7000 manns búa. Í október 1996 rak hæun lögreglustjórann og fleiri embættismenn til að ,, reyna hollustu þeirra við nýja yfirstjórn‘‘, lögreglustjórinn kærði hana fyrir ólöglegann brottrekstur en Palin var sýknuð því að hún má reka starfsmenn vegna pólitískra atriða.

Árið 2006 bauð hún sig fram til ríkisstjóra Alaska og lagði áherslu á að uppræta spillingu og sóun, hún sigraði með 48,3% en helsti keppinautur hennar Tony Knowles fékk 40,9%. Hún bauð upp einkaþotu ríkisstjórans og rak einkakokkinn eftir að hún náði kjöri og beitti neitunarvaldi á fjölmörg verkefni, mörg þeirra urðu þó að veruleika eftir lagabreytingar og ásakanir komu fram að hún hefði ekki haft næga vitneskju um gildi verkefna til að hafa beitt  neitunarvaldi á þau.

Palin er á móti hjónaböndum samkynhneigðra, fræðslu um kynlíf og getnaðarvarnir í skólum og styður skírlífskennslu í staðin, er andvíg fóstureyðingum nema líf móður sé í hættu. Hún styður dauðarefsingar og vill að sköpunarsagan sé kennd samhliða þróunarkenninguni.

SIF 10 HB

George W Bush

George Bush er fæddur 6 júlí 1946 og er fertugasti og þriðji og núverandi forseti bandaríkjanna en ekki lengi þar sem það á að fara að kjósa nýjan forseta á næstunni. Hann var og hefur verið forseti síðan árið 2000. Árið 2004 keppti hann á móti John Kerry og vann með 50,7% atkvæða og er þetta því annað tímabil hans. Bush er elstur af sex sistkynum, pabbi hans var fertugasti og fyrsti forseti Bandaríkjanna George H W Bush. Eftir að Bush hafði klárað menntun sína í Yale fór hann að vinna í olíufyrirtæki fjölskyldu sinnar. Hann giftist Laura Welch árið 1978. Hann var meðeigandi í hafnaboltaliðinu Texas Rangers áður en hann gerðist ríkisstjóri af texas árið 1994. Árið 2000 varð hann forseti Bandaríkjanna fyrir Republikana. Aðeins 8 mánuðum eftir að hann varð forseti þann 11 september 2001 réðust hryðjuverkamenn á tvíburaturnana í New York og Bush lýsti yfir alþjóðlegu stríði gegn hryðjuverkamönnum. Hann skipaði til innrásar í Afganistan sama ár og svo í Írak 2003. Yfir bæði tímabil hanns hefur hann bæði fengið besta og versta samþykki af öllum bandarískum forsetum.

SIF 10 HB

John McCain, forsetaefni repúblikana, blés í dag á þær skoðanakannanir sem hafa verið birtar fyrir komandi kosningar, en skv. þeim Barack Obama, forsetaefni demókrata, með gott forskot. McCain heldur því fram að möguleikar hans að verða næsti forseti Bandaríkjanna séu enn góðir. McCain, sem hefur mælst vera í um það bil 10 prósentustigum á eftir Obama í mörgum könnunum sem hafa verið gerðar á landsvísu, sagði í samtali við NBC sjónvarpsstöðina að baráttan sé ekki búin. „Þessar skoðanakannanir hafa ítrekað sýnt fram á að ég sé mun meira á eftir heldur en við erum í raun og veru,“ sagði McCain. „Okkur gengur vel.“ „Við minnkuðum bilið í síðustu viku og ef við höldum áfram að saxa á forskotið í næstu viku þá er ljóst að þið munið vaka lengi á kosninganóttinni.“

 

Dagblað í Alaska lýsir yfir stuðningi við Obama

 

Helsta dagblað Alaska, sem er heimaríki Söruh Palin ríkisstjóra, hefur lýst yfir stuðningi við Barack Obama, forsetaefni demókrata, fyrir komandi forsetakosningar.Dagblaðið Anchorage Daily News, sem hefur mjög mikla dreifingu í Alaska, segir að það sé of áhættusamt að Palin skuli vera einu skrefi frá því að verða forseti.Í leiðara blaðsins í dag kemur fram að það að hún skuli hafa verið útnefnd hafi vakið hrifningu íbúa ríkisins. Það megi hins vegar ekki hafa áhrif á dómgreind fólks.Athyglin skuli beinast að John McCain, en blaðið segir að valið á honum hafi ekki verið rétt

 

                   Ætluðu að myrða Obama  

Lögregla í Bandaríkjunum handtók í dag tvo karlmenn, 18 og 20 ára, sem áformuðu að ræna byssuverslun og skjóta síðan Barack Obama, forsetaframbjóðanda bandarískra demókrata, til bana auk eins margra litaðra manna og mögulegt væri. Mennirnir, sem sagðir eru tilheyra samtökum nýnasista, voru handteknir í Jackson í Tennessee. Í bíl þeirra voru margar byssur, þar á meðal afsöguð haglabyssa.

                                                                                         jetmira .10.H.B

Forusta forsetaframbjóðandans Barack Obama á repúblikanann John McCain er sú öruggasta frá því demókratinn Bill Clinton sigraði Bob Dole með yfirburðum 1996, að mati bandarísks stjórnmálafræðings.

Þannig segir Andrew Kohut, sérfræðingur hjá Pew Research Center, að jafn stöðug og örugg forusta hafi ekki sést síðustu dagana fyrir kosningar síðan Clinton tryggði sér endurkjör fyrir tólf árum.

Samkvæmt könnun Pew Research Center hefur bilið á milli Obama og McCain þó minnkað úr um 15 prósentum frá því í síðustu viku í um 7 prósent nú.Segir Kohut margt skýra minnkandi bil á milli frambjóðendanna tveggja.Fyrir það fyrsta hafi McCain aukið fylgi sitt á meðal hvítra og óháðra kjósenda og á meðal meðaltekjufólks. Þá segist fleiri aðspurðra í hópi skráðra og líklegra kjósenda ætla að kjósa McCain en áður, þegar spurt er um afstöðu þeirra í könnunum.Kohut bendir hins vegar á þá sögulegu staðreynd að stuðningur á meðal líklegra kjósenda sé gjarnan mælikvarði á árangur frambjóðenda þegar stóri dagurinn rennur upp. Bendir hann á að 36 prósent líklegra kjósenda séu mjög fylgjandi Obama, á meðan 24 prósent segjast mjög á bandi McCain. Að mati Kohut ætti þetta að vera áhyggjuefni fyrir repúblikana.Obama mælist með umtalsvert meira fylgi í nær öllum könnunum og er forskotið að meðaltali 6,4 prósent, nú þegar tveir dagar eru til kosninga á þriðjudag, að því er fram kemur á vef Realclearpolitcs.com.Ohio er eitt af lykilríkjunum í kosningunum. Það er því athyglisvert að í könnun dagblaðsins Columbus Dispatch hefur Obama mælst með stöðugt sex prósentustiga forskot á McCain. Bendir blaðið á að ef Obama fái yfir 50 prósent atkvæða verði það í fyrsta skipti sem demókrati afreki slíkt í sambandsríkinu frá því demókratinn Lyndon B. Johnson sigraði þar 1964, árið eftir að John F. Kennedy var myrtur.Samkvæmt könnun sjónvarpsstöðvarinnar CBS styðja 54 prósent líklegra kjósenda Obama, samanborið við 41 prósent fylgi hjá McCain. Könnunin, sem var gerð dagana 28-31 október, náði til 747 líklegra kjósenda.Þá má nefna að í könnun Las Vegas Review-Journal mælist fylgi Obama 47 prósent, fylgi McCains 43 prósent. Á vef New York Times kemur fram að forskot Obama hafi verið fyrst 10, svo 8 og loks 5 prósent dagana 26-28 október, sem styður að bilið sé að minnka.Samkvæmt kjörmannakorti New York Times er Obama ýmist öruggur eða nokkuð öruggur með 291 kjörmann. Segir blaðið óvissu um hvoru megin 84 kjörmenn muni falla og að McCain sé ýmist nokkuð öruggur eða öruggur með 163 kjörmenn.Til að verða forseti þarf frambjóðandi að tryggja sér 270 kjörmenn af 538

                                                                              jetmira .10.H.B

Sarah Palin plötuð

Sarah Palin hefur verið tekin mikið fyrir í fjölmiðlum og hefur oft fengið slæma umfjöllun. Einnig hefur mikið verið gert grín af henni. Hún hefur oft verið tekin fyrir í grín þættinum Saturday night live. Nú nýlega var hún hrekkt af kanadískri útvarpsstöð í þættinum The Masked Avengers.

Þáttarstjórnendurnir hringdu til skrifstofu Palins þar sem þeir þóttust vera starfsmenn Nicolas Sarkozy Frakklands forseta og báðu um að fá samband við Söruh fyrir forsetan. Sarah kom í síman mjög spennt og trúði því að hún væri að tala við forsetan. Þau ræddu um ýmis málefni, forsetinn tjáði henni það að honum fyndist að hún væri efni í forseta. Hann sagðist einnig vera mikil aðdáandi þess að veiða og að hann vildi endilega fara með henni og drepa dýr eins og hann orðaði það. Sarah var mjög áhugasöm og ánægð með að heyra frá forsetanum.

Sarah virtist ekki hafa minstu hugmynd um að hún væri í raun að tala við kanadískan útvarpsmann. Þegar þeir loks sögðu henni frá því að hún hefði verið plötuð, var hún ekki mjög ánægð yfir því og lét sig fljótt hvefa úr símanum.

Jón Gísli og Jónína 10.ÓL

John McCain gefst ekki upp

Kosningarbaráttan er á fullu eins og allir vita. En John McCain ætlar sko að halda áfram og gefst ekki upp, McCain er nú á kosningaferðalagi í Ohio þar sem hann þarf nauðsynlega á sigri að halda til að eiga möguleika á sigri Obama í kosningunum á þriðjudaginn. Hann sagði líka við kjósendur í Ohio að enn væri hægt að snúa vörn í sókn.

McCain gagnrýndi á föstudaginn stjórn George Bush, forseta, fyrir að gera ekki nóg til að koma skuldugum húseigendum til hjálpar. Þannig McCain vill nota hluta af 700 milljörðum dala, til að koma fjármálalífinu á réttan kjöl til að hjálpa þeim sem eru að missa húsnæði sitt vegna skulda, meðal annars í Ohio.

Obama er núna með tæplega sex prósentustiga forskot í ríkinu samkvæmt skoðanakönnunum, en McCain hefur ekki gefist upp og í kvöld fær hann til liðs við sig ríkistjóra Kaliforníu Arnold Schwarzenegger. Obama hefur sagt við stuðningsmenn sína að sigurinn sé hvergi nærri í höfn og hamrar áfram á þeim boðskap að John McCain haldi áfram á sömu braut og George Bush, þá komist keppinautur hans í Hvíta húsið. 
Um daginn var sýnt hálftíma auglýsingu sem Obama talar beint til áhorfendurnar og fylgst er með fólki héðan og þaðan úr samfélaginu. Sagt er að þessi auglýsing nemi meira en þremur milljóna bandarískadala, jafnvirði hátt í 360 milljóna króna. Obama hefur úr miklu meira fé að spila en keppinautur hans John McCain og það hefur augljóslega komið í ljós í kosningabaráttunni.
Fram kom í síðustu viku að Obama varði 21 milljón dala í auglýsingar, nær tvöfalt meira en McCain. McCain og hans menn vilja þó eflaust hafa meira fé á milli handanna, þeir þurfa að berjast á mörgum stöðum og leggja áherslu á að auglýsa í ríkjum þar sem er nauðsynlegt fyrir McCain að ná sigri svo sem í Virginíu, Ohio, Flórída og Pennsylvaínu.

-telma ósk 10.ól

skoðunakannanir

Skoðunakönnun 30. okt. Obama með 7% forskot á McCa á landsvísu. McCain var á ferð um Ohio þennan dag. hinsvegar ætlar Obama að halda fundi í Flórída, Virginíu og Missouri. Í ljós er komið að Obama hefur forskot í mörgum ríkjum þar sem George W. Bush fór með sigur af hólmi í síðustu kosningum og í öllum ríkjunum sem John Kerry sigraði í. En kosningarstjórn McCain segist hins vegar telja að munirnn farið hraðminnkandi.

Skoðunakönnun 31. okt. Könnun, sem gerð var fyrir AP fréttastofuna og Yahoo New sýnir, að 51% líklegra kjósenda segist ætla að kjósa Obama en 43% segist styðja McCain. Enn 14% óákveðnir eða segjast hugsanlega myndu skipta um skoðun á kjördag. munurinn hækkaði um 1% fyrir Obama.

Skoðunakönnun 1. nóv. litlar breytingar er á kosningunum 31 okt og 1 nóv, allavega heldur Barack Obama enn forskot á John McCain. samkvæmt könnun Zogby sem byrt var í gærkvöldi og í morgun segjast 50% ætla kjósa Obama en 44% ætla kjósa McCain. Zogby er búin að vera gera daglegar kannanir síðustu vikurnar og niðurstaðan sem kom í morgun sýnir að Obama hefur styrkt stöðu sína síðustu dagana. McCain fylgdi í gærkvöldi í fótspor Söruh Palin, varaforsetaefnis síns og kom fram í skemmtiþættinum Saturday Night Live. Gamanleikkonan Tina Fey lék Palin að venju. Framboð Obama skilaði í gær 265 framlagi, sem frænka hans gaf í kosningarsjóð hans.
AP fréttastofan upplýsti í gær að Zeituni Onyango, sem er hálfsystir föðurs Obama, hefði búið undanfarin fjögur ár ólöglega í bandaríkjunum, Frambjóðendur mega ekki taka við framlögun útlendinga en Obama segist ekki hafa vita um þessar aðstæður frænku sinnar.

-Telma ósk 10.ól

Endaspretturinn

Lokaspretturinn  í kosningabaráttunni fyrir forsetakosningunum í Bandaríkjunum á þriðjudag. Frambjóðendurnir tveir leggja á síðustu dögunum áherslu á ríki, þar sem kannanir benda til að munurinn sé lítill. Barack Obama hefur talsvert forskot á John McCain samkvæmt flestum könnunum.

Könnun sem Zogby stofnunin gerði fyrir Reuters og C-SPAN og birt var í kvöld bendir til þess að Obama hafi 7 prósentna forskot á McCain á landsvísu. Obama hefur forskot í mörgum ríkjum þar sem George W. Bush fór með sigur af hólmi í síðustu kosningum og í öllum ríkjunum sem John Kerry sigraði í.

Kosningastjórn McCain segist hins vegar telja að munurinn fari hraðminnkandi.

Guðbrandur 10.RB

Fréttamynd

                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                        Barack Obama borgaði fjórar milljónir bandaríkjadala til að koma á framfæri boðskap sínum í hálftíma sjónvarpsauglýsingu á besta sýningartíma á sjö sjónvarpsstöðvum í gærkvöldi. Stjórnmálaskýrendur segja ekkert nýtt hafa komið fram í máli demókratans.Kostnaðurinn vegna birtingarinnar er fjórar milljónir bandaríkjadala, jafnvirði hálfs milljarðs króna á gengi Seðlabankans í morgun, og þá er ótalið hvað kostaði að gera hana. Auglýsingin var sýnd á þremur af fjórum stóru sjónvarpsstöðvunum, CBS, NBC og Fox, og fjórum kabalstöðvum.Kvikmyndagerðarmaðurinn Davis Guggenheim leikstýrði auglýsingunni en hann er þekktastur fyrir að hafa leikstýrt heimildarmyndinni An Inconvenient Truth fyrir forsetaframbjóðandann fyrrverandi Al Gore.Óvenjulegt er að forsetaframbjóðendur í Bandaríkjunum fari þessa leið og þykir stjórnmálaskýrendum þetta til marks um hversu vel Obama og hans fólki hafi gengið að safna fé í framboðið.Stjórnmálaskýrendur segja ekkert nýtt hafa komið fram í auglýsingunni. Hann hafi endurtekið loforð um skattalækkanir fyrir lágtekjufjölskyldur og fyrirtæki sem ráði Bandaríkjamenn til vinnu og að hann ætlaði að afnema skattaívilnanir til fyrirtækja sem flytji störf úr landi. Yfir ræðu Obama voru birtar myndir af honum í kosningabaráttunni. Auglýsingunni lauk með beinni útsendingu frá kosningafundi í Flórída, einu lykilríkjanna í báráttu Obama við repúblíkanann John McCain. Þar kom Obama fram með Bill Clinton fyrrverandi forseta.Óvíst hefur verið talið að Clinton styðji Obama með heilum hug eftir að kona hans Hillary laut í lægra haldi fyrir honum í hatrammri baráttu um útnefningu Demókrataflokksins fyrr á þessu ári. Hvað sem þeim vangaveltum líður virtist fara vel á með flokksbræðrunum.

                                                                                            jetmira 10.H.B

John McCain, forsetaefni repúblikana, gagnarýndi keppinaut sinn Barack Obama, forsetaefni demókrata, harðlega í dag. McCain, sem er nú staddur í flórída, segir að Obama sé ekki hæfur þegar kemur að þvi að tryggja öryggi þjóðarinnar. McCain segir að Obama sé vanhæfur til ap vera æðsti yfirmaður bandaríska heraflans. Þetta kom fram í ræðu sem McCain flutti á kosningafund í Tampa. Obama er væntanlegur til Flórifa, en báðir frambjóðendurnir gera nú allt sem þeir geta til að tryggja sér sigur í tíkinu sem gæti orðið lykillinn að Hvita húsinu. Obama mun njóta aðstoðar Bill Clintons, fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Í kvöld mun Obama láta birta hálftíma langar auglýsingar á sjö bandarískum sjónvarpssröðum á besta tíma til að kynna framboð sitt. Aðeins eru sex dagar þar til Bandaríkjamenn kjósa sér sýjan forseta þann. 4 nóvember nk. Obama leiðir skv, flestum skoðanakönnunum sem hafa verið gerðar, bæði á landsvísu og í þeim ríkjum þar sem mjótt er á mununum

                                                                   jetmira 10.H.B

John McCain, forsetaframbjóðandai repúblikana í Bandaríkjunum, réðst í dag að andstæðingi sínum Barack Obama og sagðihann ekki hæfan til þess að tryggja öryggi þóðarinnar. McCain var á ferðinni í Tampa í Flórída í dag en það er eitt að þeim ríkjum þar sem barátta þeirra er hvap hörðust. ,, Spurningin er súhvort maðurinn ráði við það að verja Bandaríkjamenn gegn Osama binladen, al-Qaida og aðrar stórar ógnir í heiminum.” sagði McCain og bætti við að Obama hefði ekki sýnt fram á að honum væri treystandi fyrir verkinu. McCain hefur hert árásir sínar á Obama eftir þvi sem liðið hefur nær kosningunum og sakað hann meðal annars um daginn um sósíalíska skettastefnu. Þessu svaraði Obama. ,, ‘I vikulok mun hann saka mig um að vera laumukommi þvi ég deildi leikföngum með öðrum börnum á leikskóla, ” sagði Obama. Von er á Obama til Fórída þar sem hann mun ávarpa íbúa ríkisins ásamt Joe Biden, varaforsetaefni sínu. Síðan í kvöld mun svo Bill Clinton koma fram á framboðsfundi með Obama. Nú eru aðeins sex dagar til forsetakosninga og benda flestar kannanir til að Obama muni fara með sigur af hólmi, en hann hefur sjö prósentustiga forskot á McCain samkvæmt nýrri könnun Gallups

                                      jetmira 10.H.B

Nýr Bandaríkjaforseti verður kosinn eftir sex daga. Kannanir sýna að demókratinn Barack Obama hefur ýmist forskot á repúblíkananna John McCain í helstu lykilríkjum eða þá að þer eru hnífjafnir. Forsetar í Bandaríkjunum eru ekki kosnir beinni kosningu heldur eru það kjörmenn i hverju ríki sem velja þá. þess vegna skiptir kjörmannaflöldihvers ríkis sem barist er um mál. nýjar kannanir frá Associated Press sýna að Obama er með sjö til tólf prósenta forskot á McCain í fjórum ríkjum sem hingað til hafa verið talin örugg fyrir Repúblíkanaflokkunn, það er Ohio, Nevada, Colorado og Virginíu. Obama og McCain eru síðan jafnir í tveimur repúblíkanaríkjum til viðbótar, Norður-Flórída. Kosningabaráttan er á síðustu metrunum og harkan verður meiri. Frambjóðendurnir deila helst um skattalækkanir eða hækkanir og aðstoð við millistéttina. en þó er stutt sé í kosningar er enn styttra í hrekkjavöku vestra sem er á föstudaginn. Bandaríkjamenn eru nú í óða önn að búa sig undir þá hátíð og skera myndir í grasker. vinsælast er nú að skera út andlit þekktra stjórnmálamanna og þá helst Obama og McCain

                                                                            jetmira 10.H.B

Older Posts »